Fjöldi manns hefur mætt í morgun á Slökkvistöðina á Akureyri til að fá örvunarskammt með bóluefninu Pfizer í dag, fimmtudaginn 12. ágúst.

Byrjað var að blanda bóluefnið kl. 08:00 í morgun og er reiknað með yfir 2000 manns í dag og gengur vel það sem af er, enda fagfólk þarna á ferð.

Bólusett verður til kl. 17:00 í dag.

Bólusetningar hjá HSN í viku 32 sem er 9. til 13. ágúst.

Að minnsta kosti 28 dagar þurfa að hafa liðið frá Janssen bólusetningunni til að geta mætt í örvunarskammt þó mælst sé til að bilið sé átta vikur. Allir munu fá boð í þessari eða næstu viku en geta einnig valið að koma á næstu vikum.

Þeir sem ekki hafa hafið bólusetningu eða eiga eftir að fá seinni skammt af Pfizer bóluefni eru einnig velkomnir á auglýstum tímum hér fyrir neðan.

Bólusett verður fyrir Norðurland á eftirtöldum stöðum

  • Fyrir Akureyri, Dalvík og Fjallabyggð

Á Slökkvistöðinni á Akureyri fimmtudaginn 12. ágúst kl: 10-17.

  • Fyrir Húsavík, Þórshöfn, Kópasker, Raufarhöfn, Reykjahlíð og Laugar                             

 Í Íþróttahöllinni á Húsavík miðvikudaginn 11. ágúst kl: 16-18:30.

Fleiri bólusetningardagar fyrir örvunarskammt verða á næstu vikum. Tíma- og staðsetningar verða auglýstar.