Á vef Vegagerðarinnar kemur í ljós að það hefur hægt á umferð á Hringvegi. Umferð norður á land hefur dregist saman um -2.4% í júlímánuði á milli ára en aukning var upp á 12.1% á milli áranna 2016-2017 eins og sést á tölum Vegagerðarinnar.
“Umferðin á Hringveginum í nýliðnum júlímánuði jókst um 2,6 prósent sem er minni aukning en verið hefur undanfarin ár. Nú má reikna með að umferðin á Hringveginum í ár aukist um 3 prósent sem er minni aukning en verið hefur.
Milli mánaða 2018 og 2017
Umferð í nýliðnum mánuði jókst um 2,6% yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi, borið saman við sama mánuð á síðasta ári. Þetta er minnsta aukning í júlí mánuði frá árinu 2012, en telst engu að síður nokkur aukning en mætti telja hæfilega.
Mest jókst umferð um lykilteljara á Suðurlandi eða um 9,3% en 2,4% samdráttur mældist um lykilteljara á Norðurlandi.
Frá áramótum milli áranna 2018 og 2017
Nú hefur umferðin vaxið um 4,3% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þessi aukning er sömuleiðis sú minnsta frá árinu 2012 en líkt og milli mánaða má telja hana hæfilega.
Mest hefur umferð vaxið á Suðurlandi eða um 9,8% en minnst hefur aukningin orðið um Norðurland eða 1,7% aukning.
Umferð vikudaga
Frá áramótum hefur umferðin aukist hlutfallslega mest á fimmtudögum eða um 6,3% en 2,0% samdráttur er í umferð á sunnudögum. Lang mest er ekið á föstudögum en minnst á þriðjudögum. Þetta umferðarminnstur hefur verið viðvarandi frá því að þessar athuganir hófust.
Horfur út árið 2018
Gert er ráð fyrir hóflegri aukningu í umferð á Hringvegi eða um 3%. Búist er við því að umferðin aukist mest á Suðurland eða um 6% en standi í stað á Norðurlandi þ.e.a.s. að engin aukning verði þar”
Frétt: Kristín Sigurjónsdóttir og Vegagerðin
Mynd: Gunnar Smári Helgason