Rykfall, þriðja breiðskífa Myrkva sem kom út á dögunum, er afrakstur margra ára vinnu. Hún er sjálfstæðasta verk listamannsins til þessa en nánast hvert smáatriði plötunnar er spilað eða útsett af honum. Markmiðið var að skapa eitthvað sem gæti staðist tímans tönn.
Lög af plötunni eru komin í spilun á FM Trölla.

Platan fjallar um að leggja allt undir og eltast við draum. Hún hefst á slíkri yfirlýsingu og hápunkti þess frelsis, sem einnig veitir rými til þess að horfa yfir farinn veg. En nýjum raunveruleika fylgja óhjákvæmilega erfiðleikar og með tímanum seytla inn efasemdir um hvort draumurinn sé að nálgast, sem splundrar sjálfsmyndinni. Eftir sitja biturt bragðið og spurningin um hvort byrja eigi upp á nýtt eða segja þetta gott.
Nafnið Rykfall er kaldhæðinn spádómur fyrir verkið og lýsir í senn meginþemanu: jafnvæginu milli bjartsýni og vonbrigða. Með því að storka örlögunum á þennan hátt, vonast Myrkvi til þess að slá vopnin úr höndum tímans, því það má finna fegurð í týndum perlum, jafnvel þó þær safni ryki.
Lög og textar:
Magnús Örn Thorlacius
Upptökur og hljóðblöndun: Arnar Guðjónsson
Hljómjöfnun: Sigurdór Guðmundsson
Ljósmynd: Freydís Halldórsdóttir
Útgáfa: Baggabotn