Fimmtudaginn 23. maí hélt 3. bekkur í Grunnskóla Fjallabyggðar Krakkakosningar.
Krakkakosningar eru samstarfsverkefni umboðsmanns barna og KrakkaRÚV. Krakkakosningar fara fram í tengslum við forsetakosningar sem fara fram þann 1. júní nk.
3. bekkur bauð 1. – 7. bekk að koma og taka þátt í Krakkakosningum með sér. 135 nemendur í Grunnskóla Fjallabyggðar tóku þátt og greiddu atkvæði í kosningunum. Nemendur í 3. bekk útbjuggu kjörkassa og kjörklefa ásamt því að standa vörð á kjörstað með því að taka niður nöfn þeirra sem kusu og afhenda kjörseðla.
Þátttaka í árgöngunum var um 89% og vann Jón Gnarr kosningarnar með 40 atkvæðum.
Allir nemendur tóku virkan þátt og eiga sannarlega framtíð í heimi kosninganna segir á vefsíðu Grunnskóla Fjallabyggðar.

Myndir og heimild/Grunnskóli Fjallabyggðar