Í áraraðir hafa nemendur í 1. bekk Menntaskólans á Akureyri komið í skipulagða námsferð til Siglufjarðar, og heimsóttu m.a. Síldarminjasafnið.

Fimmtudaginn 15. september tók safnið á móti tæplega 100 hressum menntskælingum og voru þau frædd um síldarsöguna, störf síldarkvenna og sjómanna – og allt þar á milli.

Myndir/Síldarminjasafnið