Stóri plokkdagurinn er haldinn um allt land þann 30. apríl en þar sem það var á sunnudegi þetta árið var plokkað á þriðjudeginum 2. maí í staðinn.

Nemendur í 5. – 9. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar, leikskólabörn og nemendur í MTR tóku höndum saman og plokkuðu í bænum.

Þegar plokkararnir höfðu klárað að plokka söfnuðust þeir saman við MTR og gæddu sér á ávöxtum eftir vel heppnaðan dag. 

Sjá myndir: Hér

Mynd/Grunnskóli Fjallabyggðar