Starfsfólk Síldarminjasafnsins hefur unnið að útgáfu ljósmyndabókar undanfarið ár. Mikill metnaður var lagður í gerð bókarinnar sem telur rúmar 300 síður.
Bókin, sem ber heitið Siglufjörður. Ljósmyndir/Photographs 1872-2018, er væntanleg úr prentun í desemberbyrjun.

Á kápu bókarinnar segir:

Siglufjörður. Fáir bæir eiga jafn viðburðaríka sögu og Siglufjörður; hið ótrúlega ris staðarins sem byggðist á síldinni, einum helsta örlagavaldi Íslendinga á 20. öld. Lítið og afskekkt hákarlaþorp komst óvænt í alfaraleið erlendra fiskveiðiþjóða og varð að höfuðstað síldarinnar í Atlantshafi. En svo hvarf síldin – hvað gerðist þá í þessari litlu borg við ysta haf?
Hér er sagan rakin í 140 völdum ljósmyndum og stuttum textum á íslensku og ensku. Samtímis því að skoða meginþættina í sögu staðarins er skyggnst ofan í hið smáa og hversdagslega, athafnir hinna fullorðnu og leiki barnanna svo dæmi séu nefnd.
Þetta er bók sem allir þeir sem áhuga hafa á sögu Siglufjarðar, eða tengjast honum á einn eða annan hátt, ættu að eiga.
Höfundar bókarinnar eru starfsfólk Síldarminjasafns Íslands, Anita Elefsen safna- og sagnfræðingur, Steinunn M. Sveinsdóttir sagnfræðingur og Örlygur Kristfinnsson, fyrrum safnstjóri.

Bókina er hægt að panta í forsölu hjá Síldarminjasafninu. Annað hvort með tölvupósti á netfangið safn@sild.is eða með því að hringja í síma 467 1604. Verð kr. 9.500,-