Landsvirkjun og Samtök iðnaðarins hafa tekið höndum saman og efna til fundar um ný tækifæri í uppbyggingu á grænum orkusæknum iðnaði. Fundurinn verður haldinn í Kaldalóni í Hörpu í dag, fimmtudaginn 24. júní kl. 14 – 15 og streymt beint.

Iðnaðar- og nýsköpunarráðherra tekur þátt í umræðum.

Á fundinum verður horft til framtíðar og leitast við að svara því hvort Ísland sé reiðubúið að taka á móti nýjum grænum orkusæknum iðnaði líkt og stórum gróðurhúsum, ofurgagnaverum, rafeldsneytisvinnslu eða rafhlöðuverksmiðjum. Varpað verður fram spurningum um hvort við höfum þá innviði sem þarf, hvernig tryggja eigi aðstöðuna, orkuna og samstarf fyrirtækja, ríkisvalds, sveitarstjórna og annarra sem málið snertir.

Þátttakendur í dagskrá

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu
Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings
Jóhann Þór Jónsson, forstöðumaður hjá atNorth
Sólveig Bergmann, yfirmaður samskipta hjá Norðuráli

Fundarstjórn

Magnús Þór Gylfason, forstöðumaður hjá Landsvirkjun
Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI

Hlekkur á fundinn:



Vimeo: https://vimeo.com/event/1092638/

Aðsent