Opnað hefur verið fyrir umsóknir um nýliðunarstuðning í landbúnaði.
Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði.

Þeir einstaklingar geta sótt um stuðning sem uppfylla neðangreindar kröfur:

a. Uppfylla skilyrði skv. 3. gr. reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað
b. Eru á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi.
c. Eru að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hafa leigt eða keypt búrekstur innan þriggja ára frá 1. janúar á umsóknarári.
d. Hafa ekki áður hlotið nýliðunarstuðning samkvæmt reglugerð þessari að teknu tilliti til 17. gr.
e. Hafa ekki hlotið nýliðunarstuðning í mjólkurframleiðslu eða bústofnskaupastyrki til frumbýlinga í sauðfjárrækt samkvæmt þágildandi reglum árin 2015-2016.
f. Hafa með sannarlegum hætti lagt út fyrir fjárfestingu annaðhvort með eigin fé eða lántöku.

Fylgiskjöl með umsókn eru eftirfarandi:
a. Yfirlýsing um að umsækjandi sé nýliði.
b. Upplýsingar um eignarhald lögaðila úr fyrirtækjaskrá RSK, sé um lögaðila að ræða.
c. Rekstraráætlun til 5 ára með greinargerð, unnin af fagaðila, svo sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
d. Afrit af þinglýstum kaupsamningi vegna fjárfestingar sem óskað er stuðnings við.
e. Afrit af reikningum fyrir kaupum.
f. Afrit af leigusamningi, ef við á.

Áhugasömum umsækjendum er bent á að kynna sér reglur um forgangsröðun í nýliðaumsóknum sem má nálgast hér.

Umsóknum skal skila inn á www.afurd.is

Umsóknarfrestur er til 1. september.


Mynd: iStock