Dalvikurbyggð leitar að fallegum ljósmyndum úr Dalvíkurbyggð til að setja á nýjan instagramreikning sveitarfélagins – visitdalvikurbyggd

Þjónustu- og upplýsingafulltrúi Dalvíkurbyggðar tekur við myndunum í skilaboðum á e-mail irish@dalvikurbyggd.is eða á facebook-síðu sveitarfélagins.

Skemmtilegt væri ef íbúar sveitarfélagsins og fyrirtæki byggðarlagsins notuðu myllumerkið #visitdalvikurbyggd á myndirnar sínar.

Forsíðumynd: Aðsend mynd til Dalvíkurbyggðar frá 2017. Ljósmyndari, Annel Helgi Daly Finnbogason.