Haukur Freyr Reynisson hefur sent frá sér nýtt jólalag sem nefnist Á Þorláksmessukvöldi. Lagið verður leikið á FM Trölla í þættinum Tíu Dropar, í dag milli kl. 13 og 15.
Við fengum höfundinn til að segja okkur aðeins frá laginu.
Saga lagsins Á Þorláksmessukvöldi.
Mig langar til að fara með ykkur aftur til haustsins 2009. Á þeim tíma vorum við Lína mín að undirbúa flutninga frá Grafarholti norður í Fjörðinn fagra.
Úti var stillt og gott veður, mjög fallegt haustveður í Reykjavík. En inni í mér ólgaði risavaxinn kvíði, óvissa, áhyggjur og vanmáttur, tilfinningar sem ég hef þurft að berjast við alltof oft í lífinu bæði fyrr og síðar. Núna á síðustu þremur árum hefur mér gengið aðeins betur að vinna með sjálfan mig, bæði með því að sleppa áfenginu og hugsa betur um sjálfan mig og þau fjögur sem ég elska allra heitast, elskulegu Línu, Reyni, Kormák og Hrafnhildi.
En þarna var elsku Reynir okkar nýbúinn í einni af þeim fjölmörgu augnaaðgerðum sem hann átti svo eftir að þurfa að fara í. Lína gisti með honum á Barnaspítala Hringsins, ég var heima með hin tvö.
Eins og svo oft áður settist ég niður og byrjaði að spila einhvern spuna til að róa hugann, eitthvað sem hefur allt mitt líf hjálpað mér mikið, tónlist hefur nefnilega ótrúlega mikinn lækninga og heilandi mátt.
Ég hef heyrt ýmsa tónlistarmenn tala um að sum lög fæðist mjög auðveldlega og birtist nánast allt í einu fullkláruð. Og það var einmitt það sem ég upplifði þetta kvöld. Þegar ég var búinn að spila laglínuna yfir nokkrum sinnum, fann ég sterkt að ég þyrfti að setja saman textann. Í huganum fór ég til barnæskunnar og þar sem ég hef alltaf verið mikið jólabarn og á einungis góðar minningar frá jólunum, þá var textinn klár á frekar stuttum tíma. Ég man að ég hringdi svo í Línu og sagði henni að ég væri búinn að semja jólalag.
Mitt fyrsta jólalag.
En þetta er nú ekki allt. Í einhverju örvæntingarkasti fékk ég góða vini mína Kristján Gíslason og Kristinn Kristjánsson til að hjálpa mér að syngja og hljóðrita lagið og síðan sendi ég það inn á Rás 2 í jólalagakeppnina sem þá var í gangi, ekki komst það í úrslitin, ég var alveg temmilega svekktur!
Síðan líða árin og ég týni upptökunni og er ekkert að hugsa mikið um þessa hluti, spilaði á tímabili lítið vegna mikillar vinnu og lífsins gangs.
Árið 2020 hefur ekki staðið undir væntingum,ég slasaði mig í vinnunni í mars og síðan hef ég nánast ekkert getað unnið, en ég gat þó spilað aðeins þegar líða tók á árið og hægri höndin fór aðeins að virka aftur eftir uppskurð í maí. Þrautaganga í myrkri myndi einhver segja, en það birtir alltaf aftur!
Orð að sönnu því í nóvember 2020 finnst lagið aftur. Vinafólk okkar átti afrit af laginu hjá sér og boltinn fer aftur að rúlla.
Það á ég allt elsku Línu minni og svo Reyni að þakka. Eitt er ég nefnilega ekki orðinn góður í en það er að kýla á hlutina og láta þá gerast, Lína veit aftur á móti oft hvernig ég virka best og þannig kom hún mér í gang með að láta gamlan draum rætast og taka lagið aftur upp og vanda betur til verka.
Hún sá Inga Sigþór syngja á facebook, benti mér á hann, ég sagði vá, hann er góður. Reynir heyrði svo í honum og þar sem þeir eru góðir vinir var það létt verk; Ingi sagði já ég er til!
Þannig að á föstudegi þann 27. nóvember fyrir hádegi var ekkert sem sagði mér að ég væri að fara að vinna við lagið, og það yrði tilbúið 29 nóvember. Sama dag um kvöldið er ég kominn með frábæran upptökustjóra, gítarleikara og trommara, hann Sigfús Arnar Benediktsson, hann rekur Studio Benmen á Sauðárkróki, algjör fagmaður. Ingi Sigþór var fljótur að læra lagið og syngur það eins og engill. Síðan fékk Sigfús konuna sína, Sigurlaugu Vordísi Eysteinsdóttur til að syngja bakrödd.
Allt eru þetta hæfileikabúnt og yndislegar manneskjur og þar fyrir utan Skagfirðingar!
Nú verð ég að upplýsa að ég er frekar tæknifatlaður og eiginlega lifi á steinöld að sögn annarra fjölskyldumeðlima. Einhvern veginn tókst mér þó að senda hljómborðsspil mitt, frá Noregi,þar sem við höfum verið búsett síðustu 6 árin, með ósýnilegum bylgjum internetsins, yfir hafið og Sigfús vann svo með það, spilaði sjálfur bæði á gítar, bassa og trommur tók upp sönginn og gerði lagið að því sem það er í dag. Þúsund þakkir Sigfús, Ingi Sigþór og Sigurlaug Vordís. Einnig vil ég þakka dóttur minni Hrafnhildi sem setti lagið inn á Youtube, syni mínum Kormáki fyrir að kenna mér á upptökuforrit, Reyni og Línu minni fyrir þeirra hjálp og stuðning allan
Lagið sendi ég aftur í jólalagakeppni Rásar 2, mjög bjartsýnn um gott gengi, annað kom á daginn.
En Allt í einu á ég lag á Spotify og Youtube sem ég get stoltur sett nafnið mitt við það sem eftir lifir ævinnar og ég er ekki hættur það megið þið vita!
Endilega hlustið og njótið í jólaundirbúningnum. Lagið á Spotify
Með jólakveðju
Haukur Freyr Reynisson