Lagið heitir Segðu mér og er lag og texti eftir Ara Baldursson. Það verður leikið á FM Trölla í dag, í þættinum Tíu Dropar sem er á dagskrá kl. 13 – 15.

Segðu mér er hluti af upptöku verkefninu „Hamingjuhylur“, en það gengur út á að vinna og taka upp nokkur lög eftir Ara Baldursson. Lögin eru flest samin vorið 2020, en einnig fá tvö eldri að fljóta með. Annað var í úrslitum í sjómannalagakeppni Rásar 2 fyrir nokkrum árum en hitt lagið er frá árinu 2018 sem útsett hefur verið fyrir karlaraddir og blandaðan kór. Hugmyndin er að gera dægurlaga útgáfu af því. Ari hefur einnig samið flesta textana.

Ari Baldursson hefur fengist við tónlist yfir 40 ár. Hann starfaði með dans- og sveitaballa hljómsveitum á Akureyri á áttunda áratugnum. Einnig var hann meðlimur í dægurlaga hljómsveit í Danmörku um árabil, en sú hljómsveit sérhæfði sig í amerískri sveitatónlist. Ari hefur alltaf verið framlínumaður og haft aðal sönghlutverkið auk þess að leika á gítar og hljómborð. Síðustu ár hefur Ari gert út eins-manns hljómsveit og komið fram víða um land. Hann hefur í gegnum tíðina tekið virkan þátt í kórastarfi á norðurlandi. Hann býr núna á Akureyri.

Lagasmíðar hafa lengi verið áhugamál Ara og árið 2006 réðst hann í útgáfuverkefnið „Helst af öllu“, og gaf út 10 frumsaminn lög við texta eftir sig og aðra. Þar fékk hann til liðs við sig nokkra valinkunna tónlistamenn. Árið 2001 kom út 7 laga diskur með dúettinum Jóni forseta þar sem Ari á 3 lög, en hann var meðlimur í dúettinum á þeim tíma. Núna eru 18 lög eftir Ara skráð í kerfi STEF, en þar má finna kórlög auk dægurlaga.

Aðsent