Alls voru 229.688 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. janúar síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.653 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.019 meðlimi.
Fjölgun mest í Siðmennt
Frá 1. desember 2019 sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 615 meðlimi. Í Ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 399 meðlimi. Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 1.466 og í zuism fækkaði um 419 meðlimi.
Nýtt trúfélag
Í desember sl. var nýtt trúfélag skráð í þjóðskrá. Það er Eþíópíska tewahedo rétttrúnaðarkirkjan og telur það nú 17 meðlimi.
Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 27.929 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. desember sl. eða 7,6% landsmanna. Alls eru 55.313 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða 15,0%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. janúar sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.