Vikuna 30. ágúst til 3.september tekur Byggðasafnið á Reykjum þátt í Evrópsku menningarminjadögunum.

Áherslan er að kynna hverfandi menningararf og stuðla þannig að vitund og virðingu fyrir hefðum og kunnáttu sem brátt heyra sögunni til.

Fimmtudaginn 2. september kl: 17:00 verður dagskrá á Reykjum “Rekaviður-bátar og búsgögn” en þar verður sjónum beint að rekavið, nýtingu og vinnubrögðum og vægi hans í búháttum íslendinga um aldir.

Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að koma og ekki síst nýir íbúar svæðisins.

Aðgangur er ókeypis. https://www.europeanheritagedays.com/…/Rekavidur-batar…