Ofnbakaðir kartöfluhelmingar
- 12 kartöflur
- ½ bolli brætt smjör
- rifinn parmesan ostur
- hvítlauksduft
- önnur krydd eftir smekk ( gott að nota kryddblöndu með salti, timjan og sítrónu frá Jamie Oliver)
Hitið ofninn í 200°. Skerið kartöflur í tvennt á langhliðina. Bræðið smjör og setjið í botninn á eldföstu formi (passið að hafa formið ekki of stórt, smjörið þarf að fylla vel út í formið) og rífið vel af parmesan osti yfir. Kryddið með öðrum kryddum og raðið kartöflunum í formið með sárið niður í smjörið.
Bakið í 40-45 mínútur.
Berið fram með sýrðum rjóma.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit