Neon auglýsir opið hús fyrir íbúa Fjallabyggðar Neonráð* býður íbúum Fjallabyggðar í heimsókn í nýtt húsnæði félagsmiðstöðvarinnar miðvikudaginn 30. nóvember kl. 20:00 – 22:00

Íbúar Fjallabyggðar eru hvattir til að koma og skoða glæsilegar aðstæður unglingana, jafnvel spila pool, borðtennis eða taka á annan hátt þátt í starfinu þetta kvöld.

Boðið verður upp á veitingar.

Neonráð

*Neonráð samanstendur af sex ungmennum úr 8.-10. bekk.