Eining-Iðja vill minna félagsmenn á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert. Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
- Á almenna markaðinum er orlofsuppbótin kr. 53.000 miðað við fullt starf og greiðist 1. júní ár hvert.
- Hjá ríkinu er orlofsuppbótin kr. 53.000 miðað við fullt starf og greiðist 1 . júní ár hvert.
- Hjá sveitarfélögum er persónuuppbótin kr. 53.000 miðað við fullt starf og greiðist 1. maí ár hvert.
Tafla sem sýnir upphæð orlofsgreiðslu miðað við starfshlutfall og starfstíma
Sjá nánar í kjarasamningum viðkomandi aðila.