Þátturinn Egg, Beikon og Bakaðar Baunir er á dagskrá FM Trölla á morgun, föstudaginn 23. júní, kl. 8.

Stjórnandi þáttarins er Oskar Brown og hann sendir þáttinn út í beinni útsendingu frá Studioi 7 á Englandi.

Oskar skemmtir hlustendum FM Trölla með frábærri tónlist úr öllum áttum. Hann kíkir líka á forsíður íslensku og bresku blaðanna, skoðar helgarveðrið og svo er hlustendum boðið að taka þátt í hressilegri morgunleikfimi.

Hlustið á Egg, Beikon og Bakaðar Baunir á FM Trölla, á föstudagsmorgnum frá klukkan 8 til 10.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Einnig má hlusta á netinu, hér á trolli.is, í Spilaranum t.d. í Apple TV og ýmsum nýrri sjónvarpstækjum, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.