Það er oft sagt að morgunmaturinn sé mikilvægasta máltíð dagsins. Það er því um að gera byrja helgina hér á FM Trölla með því að hlusta á Egg, Beikon og Bakaðar Baunir á föstudögum frá klukkan 8 til 10.

Þátturinn er sendur út í beinni útsendingu frá Studio 7 á Englandi og inniheldur skemmtilega tónlistarblöndu, fréttir af forsíðum dagblaðanna, og skringilegar sögur af fólki utan úr heimi. Oskar kíkir einnig á helgarveðrið og býður öllum að taka þátt í hressilegri morgunleikfimi.

Endilega stillið á FM Trölla á föstudögum frá klukkan 8 til 10, þið sjáið ekki eftir því.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minnni netsambönd.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.