Í nótt lýsti Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra yfir óvissustigi á Tröllaskaga vegna úrkomu á Norðurlandi eystra.
Slökkviliðsmenn í Slökkviliði Fjallabyggðar voru að störfum í alla nótt bæði á Siglufirði og á Ólafsfirði, ásamt björgunarsveitarfólki frá Strákum á Siglufirði og Tindi í Ólafsfirði. Dælt hefur verið upp úr kjöllurum húsa Í Ólafsfirði og á Siglufirði síðustu tvo sólahringa.
Þá er einnig lýst yfir hættustigi í Kinn og Útkinn vegna úrkomu og skriðuhættu. Tekin hefur verið ákvörðun um að rýma eftirtalda bæi í Útkinn: Björg, Ófeigsstaði, Rangá, Engihlíð og Þóroddsstaði.
Veðurstofa Íslands hefur sett út gula viðvörun vegna úrkomu á Norðurlandi eystra og gildir hún til hádegis í dag sunnudaginn 3. október.
Veginum í Útkinn frá gatnamótum við Norðausturveg hefur verið lokað vegna aurskriðna sem þar hafa fallið.
Borist hafa upplýsingar um grjóthrun á Siglufjarðarvegi í Almenningum vestan Siglufjarðar og eru vegfarendur beðnir um að hafa varann á séu þeir á leið þar um.
Mynd/ Slökkvilið Fjallabyggðar