Pizza með fíkjusultu, hráskinku, ruccola og parmesan
- pizzabotn (keyptur eða heimabakaður)
- 1/2 bolli fíkjusulta
- maldonsalt
- um 350 g ferskur mozzarella, skorinn í þunnar sneiðar
- um 225 g hráskinka
- um 350 g ruccola
- parmesan
Hitið ofn í 250° og setjið ofnplötu í neðstu grind.
Fletjið pizzadegið út og smyrjið fíkjusultunni yfir. Stráið smá maldonsalti yfir sultuna. Leggið mozzarellasneiðar yfir og bakið pizzuna í 12-15 mínútur, eða þar til botninn er orðinn stökkur og osturinn bráðnaður. Setjið hráskinkuna strax yfir heita pizzuna og leggið síðan vel af ruccola yfir hráskinkuna. Endið á að strá parmesanosti yfir.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit