Plokkfiskur
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 2-3 msk smjör
- ½-1 tsk karrí
- 4-5 msk hveiti
- 3½ – 4 dl mjólk
- ½ tsk svartur pipar
- ½ tsk salt
- ½ tsk fiskikraftur
- 600 g soðin ýsa eða þorskur
- 300 g soðnar kartöflur í bitum
- 1-2 tsk dijon sinnep
- 120 g rifinn ostur
Hitið ofninn í 200°. Saxið lauk og hvítlauk og steikið upp úr smjöri við miðlungsháan hita þar til laukurinn verður glær. Setjið karrý saman við og steikið í ½ mínútu til viðbótar. Stráið hveiti yfir og hrærið vel saman. Bætið mjólkinni saman við í smáum skömmtum og hrærið stöðugt á meðan. Setjið fiskikraft út í ásamt pipar og salti. Látið sjóða við vægan hita um stund og hrærið í á meðan. Skerið fiskinn og kartöflurnar í bita og bætið þeim út í með sleif.
Setjið blönduna í eldfast mót. Hrærið sinnepi saman við rifinn ost og stráið yfir plokkfiskinn. Bakið í 10 mínútur eða þar til osturinn hefur bráðnað. Berið fram með rúgbrauði.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit