Plötuspilarinn er á dagskrá FM Trölla í dag kl. 17 og þá mun Oskar Brown, stjórnandi þáttarins, bjóða hlustendum upp á tónlistarhlaðborð þar sem ægir saman gömlum og nýjum lögum með frábæru tónlistarfólki víðsvegar að úr heiminum.

Á meðal þeirra sem að koma við sögu í þættinum í dag eru Benni Hemm Hemm, Grýlurnar, Hafdís Huld, KEiiNO, McRae, Nýríki Nonni, Rhapsody of Fire, og The Southern Gothic.

Ekki gleyma að hlusta á þáttinn á https://trolli.is/

Útsendingatíðni FM Trölla er FM 103.7 fyrir þá sem búa í Eyjafirði, í Ólafsfirði, á Siglufirði, í Skagafirði eða á Hvammstanga.