Fólkið á Norðurlandi vestra

eru hlaðvarpsþættir (e. podcast) sem SSNV stendur fyrir, þar sem rætt er við einstaklinga í landshlutanum sem eru að sýsla við áhugaverða hluti á hinum ýmsu sviðum.

Í dag birtist nýtt viðtal í þessari seríu, og er nýtt viðtal birt vikulega á miðvikudögum.

FM Trölli sendir viðtölin út að kvöldi birtingardags, þannig að viðtal vikunnar verður á dagskrá FM Trölla í kvöld kl. 21. Viðtölin eru u.þ.b. 20 – 30 mínútur að lengd og að þessu sinni ræðir Unnur Valborg Hilmarsdóttir við Dagný Marín Sigmarsdóttur.

Við lítum við í Spákonuhofi á Skagaströnd og spjöllum við Dagný Marín Sigmarsdóttur sem þar er í forsvari.

Dagný segir okkur frá hugmyndinni með sýningunni sem þar er að finna, hvernig þar er tekið á móti gestum og ýmsu fleiru sem tengist spádómum. Í lokin er svo hægt að heyra Dagný lesa í rún sem dregin er.

Hér eru þrjár leiðir til að sækja “podcast-ið” í mismunandi tækum. Einnig má hlusta á vefnum með því að smella hér.

feed.podbean.com/ssnv/feed.xml     feed.podbean.com/ssnv/feed.xml     feed.podbean.com/ssnv/feed.xml