Alls voru 70.307 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. júlí sl. og fjölgaði þeim um 5.722 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 8,9%.

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 43,4% frá 1. desember 2022 og voru í byrjun mánaðarins alls 3.247 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 982 einstaklinga á tímabilinu. Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Rúmeníu eða um 14,7% sem eru 534 einstaklingar á umræddu tímabili og eru nú 4.157 einstaklingar með rúmenskt ríkisfang búsettir hér á landi. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 1.677 einstaklinga eða um 7,2% og eru pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi nú 24.973 samtals.

Einnig er áhugavert að skoða hlutfallslega fjölgun frá 1. desember 2022 til 1. júlí, þar ber að nefna að hlutfallslega fjölgun frá Belarús er 46,7% sem er fjölgun um 14 einstaklinga og hlutfallsleg fjölgun frá Palestínu er 39,4% sem er fjölgun um 122 einstaklinga.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.062 einstaklinga eða um 0,3%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. júlí 2023 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2022.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

Mynd/pixabay
Heimild/Þjóðskrá