Fólkið á Norðurlandi vestra

eru hlaðvarpsþættir (e. podcast) sem SSNV stendur fyrir, þar sem rætt er við einstaklinga í landshlutanum sem eru að sýsla við áhugaverða hluti á hinum ýmsu sviðum.

Í dag birtist nýtt viðtal í þessari seríu, og er nýtt viðtal birt vikulega á miðvikudögum.

FM Trölli sendir viðtölin út að kvöldi birtingardags, þannig að viðtal vikunnar verður á dagskrá FM Trölla í kvöld kl. 21. Viðtölin eru u.þ.b. 20 – 30 mínútur að lengd og að þessu sinni ræðir Unnur Valborg Hilmarsdóttir við Jóhannes Gunnar Þorsteinsson.

Jóhannes Gunnar Þorsteinsson starfar sem tölvuleikjahönnuður í Vesturárdal í Húnaþingi vestra.

Hann starfar aðallega fyrir Hollenskt fyrirtæki og á í samstarfi við aðila út um allan heim – allt af skrifstofunni sinni á Kollafossi.

Við fengum að heyra hvaða leið Jóhannes fór til að mennta sig í leikjahönnun og hvað hann gerir til að viðhalda tengslum við leikjaheiminn þó hann sé búsettur fjarri honum.

Hér eru þrjár leiðir til að sækja “podcast-ið” í mismunandi tækum. Einnig má hlusta á vefnum með því að smella hér.

feed.podbean.com/ssnv/feed.xml     feed.podbean.com/ssnv/feed.xml     feed.podbean.com/ssnv/feed.xml