Nokkrir nemendur Menntaskólans á Tröllaskaga – MTR, vöktu athygli fyrir dugnað sinn og iðni við námið á Bókasafni Fjallabyggðar á Siglufirði á fimmtudag.

Hefðbundið skólastarf í Ólafsfirði féll niður vegna óveðurs. Ótíðin hefur raskað skólastarfi talsvert í upphafi annarinnar sem kennd er við vorið.

Nemendur og kennarar sem eiga heima innan við Ólafsfjarðarmúla hafa aðeins komist í skólann sex af tólf kennsludögum það sem af er og staðan er ekki mikið betri hjá þeim sem búa á Siglufirði.

Kennarar gera sitt besta til aðstoða nemendur og nota til þess ýmsa tækni.

Hópurinn á myndinni er til dæmis að læra íslensku og nýtur við það leiðsagnar Margrétar Laxdal, kennara síns, sem stödd var heima hjá sér á Dalvík.

Það er gleðilegt að sjá þetta framtak og að nemendur eru að taka til sinna ráða. Þeir ætla ekki að láta ótíðina spilla námsframvindunni.

Af: mtr.is