Starfsfólk og nemendur unglingastigs í Grunnskóla Fjallabyggðar er þakklátt fyrir þá velvild sem hefur verið í þeirra garð en eins og fólki er kannski kunnugt um þá bauð Róbert Guðfinnsson hús sín undir skólastarf þegar sóttvarnarreglur voru hertar núna í byrjun nóvember.

Á Rauðkutorgi hafa nemendur setið sáttir og glaðir með þá aðstöðu sem þeir hafa haft og kunna Róberti bestu þakkir fyrir.

Þann 10. desember, bauð Róbert og starfsfólk hans nemendum í pizzaveislu sem mæltist vel fyrir því það hefur ekki endilega verið auðvelt að vera svona einangruð eins og hóparnir hafa verið og geta ekki verið öðruvísi en með grímur í spjalli við bekkjarfélaga og halda fjarlægðarmörkum.

Þann 10.des var einmitt létt á grímuskyldu og fjarlægðarmörkum þeirra á milli en þó héldust takmarkanir með hópaskiptingu áfram.

Hér eru myndir frá pizzuveislunni og hér er einnig kveðja til Róberts frá Grýlu, Leppalúða og jólasveinunum segir á vefsíðu Grunnskóla Fjallabyggðar.


Sjá frétt: SIGLÓ HÓTEL LÁNAR GRUNNSKÓLANUM HÚSNÆÐI FYRIR KENNSLU