Fréttatilkynning frá HSN Fjallabyggð.
Heimsóknir verða leyfðar á hjúkrunar- og sjúkradeild HSN Fjallabyggð frá og með 4. maí næstkomandi með ákveðnum takmörkunum. Þó mikið hafi áunnist í baráttunni gegn COVID-19 erum við ekki komin í höfn og sýna þarf ýtrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Einnig er nauðsynlegt að takmarka þann fjölda sem kemur inn í heimilið á hverjum tíma. Vonir eru bundnar við að heimsóknir verði rýmkaðar enn frekar í júní 2020.
Vinsamlega kynnið ykkur vel eftirfarandi heimsóknarreglur:
- Ekki panta heimsóknartíma og alls ekki koma í heimsókn ef:
a. Þú ert í sóttkví
b. Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku
c. Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
a. Þú ert með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.). - Heimsóknartími er frá: kl 13-14, 14-15, 15-16. Hver íbúi má fá eina klukkustundar langa heimsókn í viku.
- Hafið samband Sigurð deildarstjóra á HSN Fjallabyggð og pantið heimsóknartíma.
Heimild til heimsókna, einu sinni í viku er veitt frá 4. maí. Ef vel gengur í baráttunni við veiruna, verður tíðni heimsókna aukin. - Við hvetjum ykkur til að hlaða niður í símana ykkar smitrakningar appi almannavarna Rakning C-19 fyrir 4. maí
- Gefið ykkur fram við móttökuritara við komu (um helgar hringið í hjúkrunarfræðing á deildinni í síma 893.3174). Hinkrið eftir starfsmanni á stigapalli framan við deildina, hann fylgir ykkur til íbúa. Munið að þvo og/eða spritta hendur áður en heimsókn hefst og að henni lokinni. Ekki koma við neitt í almannarýmum, farið beint inn til íbúa og beint út aftur.
- Athugið að heimsóknin er til ættingja þíns, staldrið ekki við til að ræða við aðra íbúa, ættingja eða starfsfólk.
- Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa eins og hægt er.
- Almennt er ekki gert ráð fyrir að börn og ungmenni (yngri en 14 ára) komi í heimsókn. Börn (14-18 ára) geta komið í heimsókn ef þau eru nánasti aðstandandi og koma þá einsömul.
- Ein heimsókn í viku og þurfa aðstandendur að koma sér saman um hver heimsækir þá vikuna.