Síðasta föstudag, var Saga Ýr Nazari í viðtali á FM Trölla, í þættinum Undralandið sem Andri Hrannar stjórnar.
Saga Ýr hefur vakið mikla athygli að undanförnu fyrir þær lífstílsbreytingar sem hún hefur gert á einu ári, frá því að vera langt leiddur fíkill í lífsglaða unga konu.
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2018/10/42681062_2041118632620489_5529267457224605696_n-e1538859270302.jpg)
Saga Ýr á meðan hún var í neyslu
Á DV má finna viðtal við Sögu Ýr í tilefni af eins árs edrú afmæli hennar og segir hún þar meðal annars:
„Jæja, shit, þetta tókst. Í mikilli örvæntingu ákvað ég að prófa aðra stefnu í lífinu. Ekki fyrst og fremst til þess að friða einn eða neinn heldur því ég vildi sjá hvort að grasið væri raunverulega grænna hinu megin, þar sem allt í mínum garði var orðið að ösku.“
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2018/10/42731824_2041118972620455_3407484859164131328_n-e1538859611366.jpg)
Í dag er Saga Ýr lífsglöð ung kona.
Saga Ýr Nazari í viðtali við Undralandið á FM Trölla
Frétt: Gunnar Smári Helgason
Myndir: úr einkasafni