Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar.

Samfélagsverðlaunin eru veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Sveitarfélaginu Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel.

Tilnefningar þurfa að berast fyrir föstudaginn 25. september nk. Hægt er að senda inn tilnefningu eftir þremur leiðum:

  • Senda inn rafrænt hér
  • Senda inn tilnefningu á heba@skagafjordur.is
  • Skila inn skriflegri tilnefningu í afgreiðslu ráðhússins