Sápuboltamótið í Ólafsfirði hefst í dag, föstudaginn 15. júlí. Mótið er bráðskemmtileg hátíð sem hentar öllum aldurshópum. Hver elskar ekki að horfa á aðra detta, klæða sig í búning og hafa gaman í góðra vina hópi.

Á mótinu spila fjórir saman í liði og engin takmörk eru á skiptimönnum. Mótið fer fram á dúk sem er 15×20 að stærð og notast er við handboltamörk. Liðin eru hvött til þess að mæta í búningum en veitt verða verðlaun fyrir flottasta búninginn ásamt öðrum skemmtilegum viðurkenningum á lokahófi Sápuboltans sem fer fram samdægurs. Þegar líða fer að kveldi tekur við skemmtun fram eftir nóttu.

Dagskrá:

Föstudagur

  1. júlí
    16:00 – 18:00
    Krakka sápubolti fyrir 6-17 ára. Síminn mætir á símabílnum og verður með tónlist og allskonar gefins hluti fyrir krakkana. (Aldursskipt verður á völlum og krakkar undir 10 ára þurfa að vera í fylgd með forráðamönnum)
    20:30 – 21:30
    Dregið í riðla fyrir sápuboltann.
    22:00 – 01:30
    Jói P og Króli halda uppi fjörinu (Miðar seldir í hurð 4.000 kr.)

Laugardagur

  1. júlí
    11:40
    Skrúðganga frá MTR
    12:00
    Sápuboltamótið 2022 hefst, Síminn verður á svæðinu með tónlist og stemningu.
    20:00 – 22:00
    Útiskemmtun við Tjarnarborg – Verðlaun veitt fyrir afrek dagsins, Jói p og Króli ofl. spila fyrir gesti.
    23:00 – 03:00
    Séra Bjössi, Sprite Zero Klan og Húgó í Tjarnarborg (Miðar seldir í hurð 5.500 kr.)

Frekari upplýsingar verða veittar á facebook síðu Sápuboltans.