Sara Jóna Emilía

Listakonan Sara Jóna Emelía sem búsett er í Skagafirði hefur sýslað við ýmislegt handverk í gegnum árin.

Hún hefur verið að mála vatnslitamyndir og kort. Kortin er hægt að nota sem jóla- og allskonar tækifæriskort. Einnig er hægt að ramma myndirnar inn og njóta uppi á vegg.

Myndirnar eru 8 saman í pakka með umslögum og kosta 4.000 kr., stakar myndir eru á 1.000 kr. Sent er frítt um allt land.

Sara hefur einnig verið að mála litlar myndir/seríur “Náttúra í nærmynd” og  stærri málverk.

Hægt er að skoða verk Söru og hafa samband við hana á facebooksíðu hennar Jökulhrafn Art.

Eins og sjá má á myndunum hér að neðan eru kortin Söru litrík og falleg, hægt að nota þau við öll tækifæri.

Náttúra í nærmynd
Vatnslita kort
Fallegt jóla- tækifæriskort