Húnaþing vestra veitir eftirfarandi stuðning í húsnæðismálum með hliðsjón af aðstæðum hvers og eins:

  1. Sérstakar húsaleigubætur fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem eru að fá almennar húsnæðisbætur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
  2. Stuðning til foreldra/forsjáraðila barna 15-17 ára sem leigja á heimavist/námsgörðum.
  3. Stuðning til námsmanna 18-20 ára sem ekki fá inni á heimavist eða námsgörðum.
  4. Aðstoð vegna fyrirframgreiðslu húsaleigu og/eða tryggingar.

Endurnýja þarf eldri umsóknir fyrir hvert almanaks-/skólaár eða hverja önn.

Umsóknarblað og reglur má finna á heimasíðu www.hunathing.is, umsóknarblað hér, reglur hér. Nánari upplýsingar og aðstoð veitir Henrike Wappler, félagsráðgjafi.

Umsóknir um almennar húsnæðisbætur sendast til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar á heimasíðu www.hms.is.