Síðasta opnunarhelgi sumarsins – Ekki fleiri lifandi viðburðir

Í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin vegna Covid-19 veirunnar og hinna hertu reglna um samkomur verða ekki fleiri lifandi viðburðir á Ljóðasetri Íslands þetta sumarið og þessi helgi verður sú síðasta sem opið er í sumar.

Hægt er að taka á móti 4 gestum í einu inni á setrinu og er fólk beðið um að spritta sig við innganginn og virða 2 metra regluna.