Þátturinn Síld og fiskur verður sendur út beint frá hljóðveri FM Trölla á Hvammstanga alla sunnudaga frá kl. 20:00 – 22:00.

Stjórnendur þáttarins eru hjónaefnin Birta Þórhallsdóttir og Sigurvald Ívar Helgason, en þau eru þekkt fyrir mikið og vandað menningarstarf í Húnaþingi vestra og víðar.

Þátturinn er sendur út beint frá Holt -menningarsetur -Hvammstanga.

Síld og fiskur mælir með að hlusta á nýjustu plötu Palth (t.d. á Spotify).
Það vill svo skemmtilega til að bassaleikari hljómsveitarinnar ætlar að koma til okkar í spjall í þættinum í kvöld.