Á morgun sunnudaginn 7. júní kl. 14:00, á degi sjómanna mun Slysavarnadeildin Vörn heiðra tvo sjómenn og mun Anita Elefsen segja nokkur orð við það tækifæri.

Síðan verður lagður blómsveigur að minnisvarðanum um drukknaða og týnda sjómenn á Siglufirði.

Ekki verður hið árlega sjómannadagskaffi að þessu sinni vegna Covid-19.