Dagskrá um sjómannadagshelgina í Ólafsfirði er hin glæsilegasta. Það er Sjómannadagsráð Sjómannafélags Ólafsfjarðar sem hefur haft veg og vanda að gerð dagskrárinnar sem höfðar til fólks á öllum aldri.
Hátíðarhöldin hefjast föstudaginn 31. maí og lýkur sunnudaginn 2. júní.
Dagskrá hátíðarinnar er hægt að nálgast hér og á Facebook síðu Sjómannadagsins í Ólafsfirði
Íbúar Fjallabyggðar eru hvattir til þátttöku í hátíðarhöldunum.
Boðið upp á rútuferðir á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar sem hér segir:
Laugardagur 1. júní
Frá Siglufirði kl. 13:30 og 20:30 (Farið frá Torginu)
Frá Ólafsfirði kl. 16:00 og 22:30 (Farið frá íþróttamiðstöðinni)
Sunnudagur 2. júní
Frá Siglufirði kl. 13:00 (Farið frá Torginu)
Frá Ólafsfirði kl. 16:00 (Farið frá íþróttamiðstöðinni)