Skordýraræktun, jarðhita- og eldfjallasýning í Mývatnssveit og vinnsla á lanolini úr íslenskri ull eru allt frumkvöðlaverkefni sem hlutu verðlaun í atvinnu- og nýsköpunarhraðli ANA sem lauk í nýverið.
Hraðallinn spannaði átta vikur og var tilgangur hans að hvetja til nýsköpunar og styðja frumkvöðla við þróun og mótun viðskiptahugmynda sinna.

Atvinnu- og nýsköpunarhraðallinn er samstarfsverkefni sem byggir á því að styðja við frumkvöðla og aðstoða þá við að þróa hugmyndir sínar þannig að þær geti orðið að veruleika. Að hraðlinum standa Tækifæri, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Atvinnuþróunarfélögin á Norðurlandi eystra, EIMUR, Háskólinn á Akureyri og atvinnulífið.

Hraðallinn er frumkvöðlasamkeppni á norðausturlandi sem gefur þátttakendum tækifæri til þess að koma hugmyndum sínum á framfæri og gera úr þeim markvissar áætlanir. Hraðallinn hófst með Atvinnu- og nýsköpunardeginum þann 15. september þar sem öllum áhugasömum bauðst að koma í frumkvöðlasetrið Verksmiðjuna við Glerárgötu á Akureyri og skrá sig til leiks. Þá tók við átta vikna hraðall þar sem þátttakendum var boðið upp á námskeið, ráðgjöf og aðstoð frá sérfræðingum á sviði nýsköpunar og viðskipta.

Christin Irma Schröder og Torsten Ullrich

Föstudaginn 9. nóvember lauk hraðlinum með kynningu allra verkefnanna sem tóku þátt og verðlaunaafhendingu fyrir bestu hugmyndirnar. Þrjár hugmyndir fengu verðlaun að þessu sinni.
Nýsköpunarverðlaunin fengu Christin Irma Schröder og Torsten Ullrich fyrir hugmynd sína TULCIS sem gengur út á ræktun skordýra til fóðurframleiðslu.

Sigurlaun þeirra voru peningaverðlaun að upphæð ein milljón króna. Sérstök hvatningarverðlaun hlaut Páll B. Guðmundsson fyrir hugmynd sína Ærlegur um vinnslu á fitu úr íslenskri ull, lanolini, sem svo er hægt að nýta í hágæðavörur. Hann hlaut einnig 300 þúsund krónur í peningaverðlaun fyrir vikið.

Helgi Arnar Alfreðsson og Júlía Katrín Björke

Sérstök verðlaun, Eimurinn, voru veitt fyrir bestu hugmyndina sem tengist sjálfbærni, aukinni nýtingu auðlindastrauma og/eða samspili orku, umhverfis og samfélags. Þau verðlaun hlutu Júlía Katrín Björke og Helgi Arnar Alfreðsson fyrir sýninguna sína ‚Living on a Volcano‘ þar sem jarðhitinn, eldfjöllin og samspil manns og náttúru er í aðalhlutverki.

Þeirra sigurlaun voru Eimurinn, sem Sigrún Björg Aradóttir hjá Agndofa hönnunarhúsi hannaði sérstaklega fyrir þennan viðburð, sem og peningaverðlaun að upphæð ein milljón króna.

Dómnefndina skipuðu Kristrún Lind Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Tröppu ráðgjafar, Sigurður Steingrímsson frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Sunna Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Eim og Jón Steindór Árnason, framkvæmdastjóri Tækifæris.

Páll B. Guðmundsson

Frekari upplýsingar um keppnina má finna á: www.ana.is.

Nánari upplýsingar gefur Anna Guðný Guðmundsdóttir hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á
annagudny@nmi.is og í síma 522 9431.