Krabbameinsfélag Hvammstangalæknishéraðs heldur hinn vinsæla slátubasar í dag,
laugardaginn 13. október kl 13:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga.

Við leitum sem fyrr til ykkar ágætu héraðsbúar í von um að þið viljið aðstoða félagið við þessa fjáröflun með því að gefa á basarinn.

Kaffibrauð, hvers kyns matvæli og/eða handavinna eru vel þegin. Móttaka á vörum verður í Félagsheimilinu kl. 12 – 13.

Ef sá tími hentar ekki má hafa samband við stjórnarkonur varðandi annan tíma.

Frekari upplýsingar veita undirritaðar:

  • Elsche s. 451.2956
  • Jóna s. 862.2512
  • Marín s. 848.0022
  • Sigurbjörg s. 895.2993
  • Soffía s. 897.1164

 

Mynd: Wikipedia