Sloppy Joe Mac n Cheese (uppskrift fyrir 2-3)
- ¾ bolli tómatsósa í dós
- 2 msk púðursykur
- 1 msk tómatpúrra
- 2 tsk Worcestershire sósa
- ½ tsk salt
- ¼ tsk mulinn svartur pipar
Hrærið öllu saman og leggið til hliðar.
- 2 bollar ósoðið pasta
- 1 msk olía
- ¾ bolli hakkaður laukur
- 1 græn paprika, skorin smátt
- 2 hvítlauksrif, pressuð eða fínhökkuð
- 225 g nautahakk
- 1 bolli rifinn cheddar ostur
Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakkningu.
Hitið olíu á pönnu við miðlungsháan hita og steikið lauk, papriku og hvítlauk þar til mjúkt. Bætið nautahakki á pönnuna og steikið þar til fulleldað. Bætið þá sósunni á pönnuna ásamt soðnu pastanu og setjið rifinn ostinn yfir.
Lækkið hitann undir pönnunni og blandið varlega saman þar til osturinn hefur bráðnað og allt hefur blandast vel.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit