Fjallabyggð verður með smíðavelli fyrir börn fædd 2007 – 2011 á tímabilinu 15. júlí – 1. ágúst á Siglufirði og í Ólafsfirði.

Smíðavellirnir verða opnir þrisvar í viku, mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 10:00 – 12:00 nema síðustu vikuna þá verða vellirnir opnir í fjóra daga frá mánudegi – fimmtudags.

Fimmtudaginn 1. ágúst verður boðið upp á grill og gleði.

Verkefnið er í umsjón yfirmanns vinnuskóla Fjallabyggðar.

Samtals verður boðið uppá 10 daga á tímabilinu 15. júlí til 1. ágúst og skiptast þeir eftirfarandi:

1. vika opið þrjá daga 15. 16. og 17. júlí
2. vika opið þrjá daga 22. 23. og 24. júlí
3. vika opið fjóra daga 29. 30 og 31. júlí og 1. ágúst en þá verður grillað og gleði.

Börn sem sækja smíðavellina eru á ábyrgð foreldra og er frjálst að koma og fara á þeim tíma sem smíðavellir eru opnir.

Börn sem sækja smíðavelli fá timbur og nagla á staðnum en þurfa sjálf að koma með hamar og sög.

Staðsetning:

Ólafsfjörður: á sléttunni norðan við Ólafsveg, bak við hús Lísu Hauks.

Siglufjörður: á sléttunni fyrir framan Mjölhúsið

Upplýsingar veitir Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri í síma 844 5819, rikey@fjallabyggd.is og Haukur Sigurðsson yfirmaður vinnuskóla í síma 863 1466, haukur@fjallabyggd.is