Áætlað er að söfnun á rúlluplasti fari fram vikuna 8. – 12. júlí nk. í Húnaþingi vestra.

Þeir bændur sem óska eftir því að nýta sér þjónustuna vinsamlega tilkynni það til skrifstofu Húnaþings vestra
í síma 455-2400, eða á netfangið: skrifstofa@hunathing.is,  fyrir 5. júlí nk.

Söfnunin kemur til með að hefjast í Hrútafirði  og fikrast til austurs fram eftir vikunni eins og áður.

Frekari upplýsingar gefa starfsmenn Gámaþjónustunnar í síma: 452 2958