Af gefnu tilefni;
Ábendingar hafa komið frá sorphirðuverktaka um að sorptunnur fyrir heimilissorp við heimili í dreifbýli séu víða staðsettar innandyra í Húnaþingi vestra. Starfsmenn sorphirðunnar munu hér eftir ekki sækja sorptunnur inn í hús til losunar.
Nú má einnig búast við að sumarafleysingafólk verði í sorphirðunni og því mikilvægt að tunnurnar séu staðsettar á áberandi stað utandyra. Ávallt skal þó tryggja að þær séu festar niður og teygjur settar á lokin þar sem þess er þörf.
Skv. gildandi byggingarreglugerð kemur fram að bannað sé að nota sorpílát úr plasti innandyra, nema í sorpgeymslum sem byggðar eru í samræmi við önnur ákvæði reglugerðarinnar
Leiðbeiningar um notkun sorpíláta úr plasti
Mynd/Húnaþing vestra