Byggðasafnið Hvoll á Dalvík er í senn byggða-, náttúrugripa- og mannasafn. Þar eru ýmis áhöld og innanstokksmunir frá fyrri tíð og haganlega gerðir skrautmunir unnir af hagleiksfólki af svæðinu. Á náttúrugripasafninu er fjöldi íslenskra fugla og spendýra, þar sem ísbjörninn vekur mesta athygli.

Minningarstofur eru um Jóhann Svarfdæling, sem var um tíma hæsti maður heims og Kristján Eldjárn forseta.

Árið 1934 reið jarðskjálfti yfir Dalvík (6,2 á Richter). Jarðskjálftanum eru gerð skil í sérstakri stofu safnsins.

Í júní 2014 fékk Byggðasafnið Hvoll viðurkenningu Safnaráðs.

 

Í lok ágústmánaðar lét Íris Ólöf Sigurjónsdóttir af störfum hjá Dalvíkurbyggð eftir 16 ára starf sem forstöðumaður byggðasafnsins Hvols. Síðasta verk Írisar var að taka á móti gjöf frá Viggo Block, fallegum munum frá dvöl hans á Grænlandi en verið er að vinna að forskráningu þessara gripa.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á þessum tímamótum.

 

.

 

.

 

 

Heimildir: dalvikurbyggd.is