Stebbi og Eyfi hafa fyrir löngu síðan skipað sér í framvarðasveit dægurlagahöfunda og -söngvara og spannar samstarf þeirra vel yfir 30 ár. Á tónleikunum í kvöld 20. apríl á Kaffi Rauðku munu þeir fara yfir ferilinn í tali og tónum og flytja margar perlur íslenskrar dægurlagasögu.

Þeim til fulltingis að venju verður hinn frábæri píanóleikari Þórir Úlfarsson.

Í tilefni páskanna munu þeir félagar gefa fjölmörgum heppnum tónleikagestum vegleg páskaegg frá Góu.

Tónleikarnir hefjast kl. 22.00 og er forsala aðgöngumiða á Sigló Hóteli Siglufirði s. 461-7730 og er miðaverð kr. 3.900