Haldið er upp á sólardaginn á Siglufirði og Ólafsfirði á margvígslegan hátt í Fjallabyggð. Eitt af því sem gleður hjörtu bæjarbúa var að sjá skólabörn Fjallabyggðar í gær sem sungu til sólarinnar eftirfarandi vísur:
Fyrsti sólardagur var í Ólafsfirði fimmtudaginn 25. janúar og á Siglufirði er fyrsti sólardagur á morgun sunnudaginn 28. janúar.
Sól er yfir Siglufirði
sumarheið og skær,
blálygn sundin, bjartur spegill
bliki á þau slær.
Fjöllin eins og varnarvirki
vaka nær og fjær.
Fjöllin eins og varnarvirki
vaka nær og fjær
Sól er yfir Ólafsfirði
öllum gleði ljær
Blálygnt vatnið, bjartur spegill
bliki á það slær.
Inn með firði fjöllin vaka
fannhvít nær og fjær.
Inn með firði fjöllin vaka
fannhvít nær og fjær.
Ingólfur á Prestsbakka samdi fyrra erindi ljóðsins um sólina yfir Siglufirði. Guðný Róbertsdóttir samdi hins vegar Ólafsfjarðarerindið til að skapa jafnvægi í hugum skólabarnanna þegar þau sungu sólarbraginn. Þórarinn Hannesson samdi lagið.
Mynd/Fjallabyggð