Í kvöld föstudaginn 9. ágúst milli 20:15 – 22:15 geta gestir og gangandi rölt í rólegheitum um Dalvík, ef þeir sjá tvo logandi kyndla í garði eða við hús þá er um að gera að droppa inn og fá að smakka fiskisúpu og njóta þess að spjalla í rólegheitum við gestgjafana og gesti.

Á þessu kvöldi tendra bæjarbúar ljósaseríur við hús sín og þá er ljúft að fá sér göngutúr um bæinn, skoða ljós og skreytingar, kíkja í heimsókn, smakka súpu og kynnast nýju fólki.

Hver og einn er með sína uppskrift af fiskisúpu. Þetta er og mun verða partur af stemmningu Fiskidagsins mikla, þáttur í að sýna gestum byggðarlagsins gestrisni okkar og hluti af því að gera lífið skemmtilegt og mynda ljúfa og rólega stemmningu fyrir daginn stóra.

Öll húsin í Steintúni, Miðtúni og Hringtúni með í súpu í einni stöð í Hringtúninu.

Böggvisbraut
Skógarhólar
Dalbraut
Sunnubraut
Mímisvegur
Smáravegur

Stórhólsvegur
Hafnarbraut
Skíðabraut
Ásvegur

Sognstún
Karlsrauðatorg
Ægisgata

2 götur á Hauganesi
1 gata á L. Árskógssandi