Í kvöld, sunnudaginn 4. desember verður boðið upp í dans í Tjarnarborg, Ólafsfirði.

Stýrihópur um Heilsueflandi samfélag í Fjallabyggð ætlar að ljúka árinu með því að bjóða íbúum Fjallabyggðar upp á tvö opin danskvöld í Tjarnarborg, það fyrra var sunnudagskvöldið 27. nóvember og seinna danskvöldið er í kvöld, 4. desember kl. 20:00.

Danskennarinn Ingunn Hallgrímsdóttir verður á staðnum og kennir og leiðbeinir þátttakendum. Þátttaka er endurgjaldslaus.

Dönsum inn í aðventuna, njótum samverunnar og höfum gaman saman!

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Athugið að ekki er krafist skráningu á námskeiðið  en gott væri  að áhugasamir skrái sig hér fyrir neðan, til hagræðingar fyrir danskennara.

Skráning