Undanfarnar vikur hefur verið unnið að því í samstarfi við lögfræðing og endurskoðanda sveitarfélagsins að sveitarfélagið [Húnaþing vestra] yfirtaki stjórn Félagsheimilisins á Hvammstanga í samræmi við stefnu B-lista.

Sveitarfélagið er 86% eigandi og ljóst að meðeigendur hafa ekki það fjármagn í hlutfalli við eignaraðild sem til þarf til að vinna að nauðsynlegu viðhaldi og endurbótum á húsnæðinu en ástand hússins er ekki sæmandi því góða starfi sem þar fer fram.

Málið hefur verið rætt óformlega við fulltrúa stjórnar meðeigenda, Kvenfélagsins Bjarkar og Ungmennafélagsins Kormáks.

Hugmyndin er að kvenfélagið og ungmennafélagið afsali sér sínum hlut en fái um leið samning um afsláttakjör af leigu til næstu 25 ára.  Í framhaldi af því verði samþykktir uppfærðar.  Félagsheimilið á Hvammstanga yrði því eins og hver önnur B hluta stofnun sveitarfélagsins.

Þetta er talin besta færa leiðin til að hægt sé að fara í uppbyggingu og lagfæringu á húsnæði félagsheimilisins en hætt er við að annars tefjist sú vinna um ókomin ár.  Sveitarstjórn samþykkir að oddvitar beggja lista og sveitarstjóri ræði við stjórnir meðeigenda með ofangreind markmið að leiðarljósi.“  Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Texti: úr bókun Húnaþings vestra frá 28. janúar
Mynd: Trölli.is